Notendaskilmálar

Notendaskilmálar

Skilmálar og ábyrgð vegna notkunar á Dýrið mitt.

Útgáfa: 1.1 Síðast uppfært: 5. mars 2026

Þessir notendaskilmálar gilda um notkun á veflausninni Dýrið mitt.

Dýrið mitt er þjónusta sem gerir dýraeigendum kleift að halda utan um upplýsingar um gæludýr sín, svo sem sjúkrasögu, bólusetningar og umönnunarleiðbeiningar, og eftir atvikum deila slíkum upplýsingum með dýralæknastofum.

Með því að stofna aðgang og nota þjónustuna samþykkir notandi þessa notendaskilmála. Ef notandi samþykkir ekki skilmálana er honum ekki heimilt að nota þjónustuna.

Notendaaðgangur

Til að nota þjónustuna þarf notandi að stofna aðgang og veita réttar, uppfærðar upplýsingar.

Dýrið mitt áskilur sér rétt til að loka eða takmarka aðgang ef grunur leikur á misnotkun.

Upplýsingar um dýr

Notendur geta skráð upplýsingar um dýr sín í kerfið, svo sem nafn, aldur, þyngd, örmerki, sjúkrasögu, bólusetningar, umönnunarleiðbeiningar og mynd af dýrinu.

Notandi ber ábyrgð á að þar upplýsingar sem skráðar eru í kerfið séu réttar og uppfærðar.

Tilgangur þjónustunnar

Dýrið mitt er stafrænt hjálpartæki fyrir dýraeigendur.

Notendur skulu ávallt leita til dýralæknis ef upp koma heilsufarsvandamál eða spurningar um heilsu dýrs.

Samvinna við dýralæknastofur

Dýrið mitt getur gert dýralæknastofum kleift að tengjast kerfinu til að skoða og skrá upplýsingar um dýr.

Hver dýralæknastofa ber ábyrgð á aðgangsstýringu starfsmanna sinna og á notkun þeirra á þjónustunni.

Samþykki fyrir aðgangi og breytingum á sjúkraskrá

Með því að veita dýralæknastofu aðgang samþykkir notandi að viðkomandi dýralæknastofa geti skoðað og skráð upplýsingar um dýrið og uppfært sjúkraskrá eftir þörfum.

Efni sem notendur setja inn

Notendur bera ábyrgð á efni sem þeir setja inn í þjónustuna. Óheimilt er að setja inn efni sem brýtur gegn lögum, brýtur rétt annarra eða er móðgandi eða óviðeigandi.

Aðgengi að þjónustunni

Dýrið mitt leitast við að halda þjónustunni aðgengilegri og öruggri, en ábyrgist ekki að hún verði ávallt án truflana eða villna.

Takmörkun ábyrgðar

Dýrið mitt ber ekki ábyrgð á rangri skráningu upplýsinga, ákvörðunum byggðum á gögnum í kerfinu, notkun dýralæknastofa á gögnum eða tímabundnu tapi gagna og truflunum í þjónustunni.

Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við persónuverndarstefnu Dýrið mitt.

Breytingar á þjónustu

Dýrið mitt áskilur sér rétt til að breyta þjónustunni, bæta við eiginleikum eða hætta rekstri hennar eftir þörfum.

Breytingar á skilmálum

Dýrið mitt getur uppfært þessa notendaskilmála eftir þörfum. Uppfærðir skilmálar taka gildi þegar þeir eru birtir á vefsíðu þjónustunnar.

Gildandi lög

Þessir notendaskilmálar lúta íslenskum lögum.

Samþykki skilmála

Með því að stofna aðgang staðfestir notandi að hann hafi lesið skilmálana, skilið þá og samþykkt þá.